Skokkhópur Fjölnis er opinn öllum sem vilja hlaupa í góðum félagsskap, hvort sem þeir eru að taka fyrstu sporin í hlaupum eða undirbúa sig fyrir keppni.
Fyrstu æfingar fríar – engin skuldbinding
Mæting 17:30 · hlaupið af stað 17:35 · Apríl–sept: fimmtudagsæfingar einnig – 📍 Esja og 📍 Úlfarsfell (neðra) / 📍 Úlfarsfell (efra)
Æfingaáætlun komandi viku birt á sunnudegi
Fjölnishlaupið 2026 – 14. maí
38. hlaupið. Haldið á Uppstigningardaginn kl. 11:00 við Dalhús. Þrjár vegalengdir: 1,4 km, 5 km og 10 km. Meðlimir vinna sem sjálfboðaliðar.
🌱 Ég er að byrja
Skoðaðu nýliðahlutann; Hvað gerist á fyrstu æfingu, hvernig við hlaupum og hvað við bjóðum upp á.
Sjá nýliðahlutann →Hvernig er dresscode-ið?
✓ Þægilegur hlaupafatnaður
✓ Hlaupaskór (engin þörf á að kaupa nýja)
Fyrsta æfing í stuttu máli
→ Mættu 5 mín fyrir æfingu
→ Þú hleypur á passlegum hraða með bros á vör
Við hlaupum á mismunandi hraða, það er enginn hópur of hægur og heldur enginn hópur of hraður.
"Mætti á mína fyrstu hlaupaæfingu fyrir tæpum tveimur árum og gat ekki skokkað milli tveggja ljósastaura. Er núna búin að hlaupa hálfmaraþon í Köben."
"Var dregin á byrjendanámskeiðið og hafði aldrei hlaupið áður. Markmiðið var að geta hlaupið 5 km – og er nú búin að klára hálft maraþon."
"Þvílíkar framfarir á tveimur árum. Jón Oddur þjálfari hefur verið óspar á góð ráð, setur upp frábærar æfingar og hefur kennt mér að hlaupa lengur."
Taktu vin með
Það er alltaf auðveldara að mæta í fyrsta sinn með einhverjum. Þið fáið bæði fyrstu æfinguna frítt.
Smelltu á mánuð til að sjá alla viðburði.
Utanvegatímabil · Apríl – September
Laugardagar — staðsetning kynnt hverju sinni. Klassískar upphafsstaðir: Sæmundarskóli, Rauðhólar, Elliðavatnsbær, Helluvatn
Fimmtudagar — valkvæðar hækkunaræfingar — Esja eða Úlfarsfell (neðra) / Úlfarsfell (efra)
Leiðirnar okkar eiga sér nöfn – smelltu á hverja til að sjá nánar og hlaða niður GPX skrá.
Fimmtudagsæfingar – apríl til september
Valkvæðar hækkunaræfingar á fimmtudögum: 📍 Esja (mismunandi leiðir eftir getu) eða 📍 Úlfarsfell (neðra) / 📍 Úlfarsfell (efra) – styttri en kröfuharðari. Bætir styrk í fætur og undirbýr fyrir utanvegakeppni.
Nýliðanámskeið — haust og vor
Haust · 6 vikur · byrjar fyrsta mánudag í september · æfingabolur innifalinn.
Vor · 6 vikur · lýkur miðvikudaginn fyrir Uppstigningardag · æfingabolur og þátttökumiði á Fjölnishlaupið innifalinn.
Verð kynnt þegar nær dregur.
Skráning og greiðslur í gegnum Abler – auðvelt með Auðkenni
Frjálsíþróttadeild Ungmennafélagsins Fjölnis
Ræst kl. 11:00 frá göngustíg við Gagnveg (~500 m norðaustan við Dalhús). Vestur eftir Gagnvegi, um Fjallkonuveg, niður göngustíg að Grafarvogi. Inn í Bryggjuhverfið um Gullinbrú, eftir göngustíg meðfram Elliðaárósum og yfir nýju brýrnar við Geirsnef. Rangsælis hringur um Geirsnef og til baka. Mjög flöt leið.
Ræst kl. 11:10 frá endamarki. Sama leið og 10 km í fyrri helming – snúið við í Bryggjuhverfi og hlaupið sömu leið til baka.
Ræst skömmu eftir 5 km hlaupið. Hringur um Dalhús og yfir á Fjallkonuveg. Hentar öllum aldri og líkamsástandi.
Forskráningu lýkur á miðnætti 13. maí 2026
Forskráning á netskraning.is. Afhending gagna 13. maí kl. 18–19 og á hlaupadegi 14. maí kl. 09:15–10:00 í anddyri Grafarvogslaugar.
Skráningu lýkur 13. maí kl. 23:59
Vertu sjálfboðaliði á Fjölnishlaupinu
Meðlimir skokkhópsins vinna á hlaupinu sem sjálfboðaliðar – þetta er hluti af menningu hópsins og eitt af því sem gerir Fjölnishlaupið að sérstæðum viðburði.
Frá 1992 hefur Fjölnir skokkhópur safnað fólki saman sem vill hlaupa í góðum félagsskap.
Fyrsta Fjölnishlaupið
Fjölnishlaupið var fyrst haldið — fjórum árum áður en skokkhópurinn sjálfur var stofnaður. Hlaupið hefur farið fram árlega síðan.
Skokkhópurinn stofnaður
Haustið 1992 stofnaði Erla Gunnarsdóttir hlaupahópinn ásamt Elínu Önnu, samkennara í Hamraskóla. Á þeim tíma störfuðu aðeins tveir aðrir hlaupahópar á landinu — í Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi. Við hittumst við Hamraskóla á mánudögum og miðvikudögum kl. 17:30. Frá upphafi var lögð áhersla á upphitun, teygjur og samkennd óháð getu — vettvangur til að hreyfa sig í hverfinu sínu án skráningar og skuldbindinga.
Fyrstu sigrar og keppnishlaup
Í mars vann hópurinn skemmtikeppnina á árshátíð Fjölnis með laginu „Hress og kát á hreyfingu". Hefðin að halda árshátíð aðra helgina í mars hélt næstu 25 árin. Á Sumardaginn fyrsta, 22. apríl, tók hópurinn þátt í ÍR-hlaupinu (5 km) — fyrsta sameiginlega keppnishlaupinu. Þann 22. ágúst hljóp svo stór hópur Reykjavíkurmaraþonið.
[Fleiri tímamót]
[Bætist við þegar fleiri „Horft um öxl"-pistlar Erlu eru tilbúnir.]
38. Fjölnishlaupið — 14. maí
Haldið á Uppstigningardaginn við Dalhús. Þrjár vegalengdir og hópurinn fjölmennari en nokkurn tíma áður.
Myndir úr sögu hópsins — frá fyrstu árum til dagsins í dag.
2000
Brúarhlaupið yfir Eyrarsund
Hópurinn tók þátt í BRØLØBET — opnunarhlaupinu yfir Eyrarsundsbrúna milli Svíþjóðar og Danmerkur.
[ÁR]
Hópurinn í Kaupmannahöfn
Skokkhópurinn fyrir framan Ráðhús Kaupmannahafnar með Fjölnis-fánann á lofti.
Fjölnir skokkhópur var stofnaður 1992 og er hluti af Frjálsíþróttadeild Ungmennafélagsins Fjölnis í Grafarvogi. Æfingar að minnsta kosti þrisvar í viku.
Á hverju ári stöndum við að baki Fjölnishlaupinu – einu elsta almenningshlaupi landsins. Meðlimir í hópnum eru sjálfboðaliðar við framkvæmd hlaupsins.
Fylgstu með okkur
Æfingaáætlun vikunnar og fréttir á Facebook síðunni okkar
Sem meðlimur í Fjölni skokkhópi nýtur þú sérstakra kjara hjá völdum verslunum í Reykjavík. Kynntu þig sem meðlim við afgreiðslu.
Hlaupár
Hlaupavörur og búnaður
Kjör í vinnslu