Ungmennafélagið Fjölnir · Frjálsíþróttadeild · Grafarvogur
Um okkur fjolnir.is Skrá mig
Grafarvogur · Reykjavík · Stofnaður 1992

Hlaupum
saman –
á öllum hraða

Skokkhópur Fjölnis er opinn öllum sem vilja hlaupa í góðum félagsskap, hvort sem þeir eru að taka fyrstu sporin í hlaupum eða undirbúa sig fyrir keppni.

Fyrstu æfingar fríar – engin skuldbinding

34
ára saga
3–4×
á viku
∀
fyrir alla
Æfingaskipulag
Mánudagar
17:30
Mæting 17:30 · hlaupið af stað 17:35
📍 Grafarvogslaug – sjá á korti →
Miðvikudagar
17:30
Mæting 17:30 · hlaupið af stað 17:35
📍 Grafarvogslaug – sjá á korti →

Mæting 17:30 · hlaupið af stað 17:35 · Apríl–sept: fimmtudagsæfingar einnig – 📍 Esja og 📍 Úlfarsfell (neðra) / 📍 Úlfarsfell (efra)

Æfingaáætlun komandi viku birt á sunnudegi

Fjölnishlaupið 2026 – 14. maí

38. hlaupið. Haldið á Uppstigningardaginn kl. 11:00 við Dalhús. Þrjár vegalengdir: 1,4 km, 5 km og 10 km. Meðlimir vinna sem sjálfboðaliðar.

Hvar ertu?

🌱 Ég er að byrja

Skoðaðu nýliðahlutann; Hvað gerist á fyrstu æfingu, hvernig við hlaupum og hvað við bjóðum upp á.

Sjá nýliðahlutann →
Grafarvogur · Opið öllum
Það þarf ekki að hlaupa hratt
Engin skuldbinding, mættu bara og sjáðu hvort þetta hentar þér
Hvað gerist á fyrstu æfingu
01
Við tökum á móti þér
Við Grafarvogslaug kl. 17:30 og kynnum þig fyrir hópnum.
02
Við hlaupum saman
Þjálfari fer yfir æfingu dagsins og hleypur með þér.
03
Spjall eftir
Góður félagsskapur eftir hlaupið, þetta er oft besti hlutinn.
04
Þú ákveður framhaldið
Prófaðu aftur eða skráðu þig í hópinn. Nýliðanámskeið eru vor og haust.

Hvernig er dresscode-ið?

✓ Þægilegur hlaupafatnaður

✓ Hlaupaskór (engin þörf á að kaupa nýja)

Fyrsta æfing í stuttu máli

→ Mættu 5 mín fyrir æfingu

→ Þú hleypur á passlegum hraða með bros á vör

Á hvaða hraða er ég?

Við hlaupum á mismunandi hraða, það er enginn hópur of hægur og heldur enginn hópur of hraður.

Rólegur
7:30+
mín/km
Miðlungs
6:00–7:30
mín/km
Hraður
4:30–6:00
mín/km
Þeir sem voru einu sinni nýliðar

"Mætti á mína fyrstu hlaupaæfingu fyrir tæpum tveimur árum og gat ekki skokkað milli tveggja ljósastaura. Er núna búin að hlaupa hálfmaraþon í Köben."

Heiðdís Valgeirsdóttir
Í hópnum síðan 2022

"Var dregin á byrjendanámskeiðið og hafði aldrei hlaupið áður. Markmiðið var að geta hlaupið 5 km – og er nú búin að klára hálft maraþon."

Anna Guðmundsdóttir
Í hópnum síðan 2023

"Þvílíkar framfarir á tveimur árum. Jón Oddur þjálfari hefur verið óspar á góð ráð, setur upp frábærar æfingar og hefur kennt mér að hlaupa lengur."

Erling Tómasson
Í hópnum síðan 2021
Algengar spurningar
Er ég nógu í formi til að koma?+
Já, eina skilyrðið er að þú getir gengið í 30 mínútur. Þjálfari passar upp á að allir komist áfram.
Þarf ég að skrá mig fyrirfram?+
Nei, mættu bara við Grafarvogslaug kl. 17:30 á mánudegi eða miðvikudegi og kynntu þig fyrir Jóni þjálfara.
Hvað ef ég er hægur og hinir eru mun hraðari?+
Hópurinn skiptist eftir hraða á laugardagsæfingum. Þjálfari fylgir hægari hópnum og hraðari hlauparar fara sér, allir komast vel áfram.
Hvað kostar að vera í hópnum?+
Fyrstu æfingar fríar. Eftir það: Félagshópur 3.500 kr./mán. Nýliðanámskeið haust og vor — verð kynnt þegar nær dregur.
Get ég hætt hvenær sem er?+
Já, allir samningar hafa 1 mánaðar uppsagnarfrest. Engin langtímaskuldbinding.
Hvað er Fjölnishlaupið?+
Fjölnishlaupið er árlegt hlaup sem við stöndum að baki, haldið á Uppstigningardaginn í maí. 38 ára saga. Þrjár vegalengdir: 1,4 km, 5 km og 10 km. Meðlimir hópsins vinna sem sjálfboðaliðar. Næsta hlaup: 14. maí 2026.

Taktu vin með

Það er alltaf auðveldara að mæta í fyrsta sinn með einhverjum. Þið fáið bæði fyrstu æfinguna frítt.

Fjölnir skokkhópur · 2026

Árshjól og viðburðir

Smelltu á mánuð til að sjá alla viðburði.

Veldu mánuð til að sjá viðburði.
Litakóðar
Hlaup / keppni
Nýliðanámskeið
Félagslegur viðburður
Utanvegatímabil (apr–sept)

Utanvegatímabil · Apríl – September

Laugardagar — staðsetning kynnt hverju sinni. Klassískar upphafsstaðir: Sæmundarskóli, Rauðhólar, Elliðavatnsbær, Helluvatn

Fimmtudagar — valkvæðar hækkunaræfingar — Esja eða Úlfarsfell (neðra) / Úlfarsfell (efra)

Grafarvogur og nágrenni

Klassískar hlaupaleiðir

Leiðirnar okkar eiga sér nöfn – smelltu á hverja til að sjá nánar og hlaða niður GPX skrá.

Malbik · Hringur
T-hringur
10 km · Frá Grafarvogslaug
10 km132m hækkun🗺️ Kort
Malbik · Hringur
T-hringur með Gufuneströppum
12,3 km · Frá Grafarvogslaug
12,3 km224m hækkun🗺️ Kort
Utanvegar · Hringur
Ríkishringur
12,8 km · Frá Helluvatni
12,8 km280m hækkun🗺️ Kort
Malbik · Flöt
Fossvogur – að drykkjarfonti
12,2 km · Frá Gullinbrú
12,2 km130m hækkun🗺️ Kort
Malbik · Löng
Niður í bæ – Laugardalurinn
21,3 km · Frá Gullinbrú
21,3 km477m hækkun🗺️ Kort
Leiðir án korts
Malbik
Öfugur T-hringur
8–12 km
8–12 km
Utanvegar
Undir Hamra
10–15 km
10–15 km
Blanda
Listaverkabrekka
6–9 km
6–9 km
Malbik · Flöt
Berlínarbrautin
15–21 km
15–21 km

Fimmtudagsæfingar – apríl til september

Valkvæðar hækkunaræfingar á fimmtudögum: 📍 Esja (mismunandi leiðir eftir getu) eða 📍 Úlfarsfell (neðra) / 📍 Úlfarsfell (efra) – styttri en kröfuharðari. Bætir styrk í fætur og undirbýr fyrir utanvegakeppni.

Þrep og verð
Nýliðanámskeið
Haust *
6 vikna prógram · byrjar 1. mánudag í september
  • Sér nýliðahópur með þjálfara
  • Grunnkennsla í hlaupastíl og líkamsbeitingu
  • Ráðleggingar um útbúnað
  • Æfingarplan
  • Æfingabolur innifalinn
Vor *
6 vikna prógram · lýkur miðvikudaginn fyrir Uppstigningardag
  • Sér nýliðahópur með þjálfara
  • Grunnkennsla í hlaupastíl og líkamsbeitingu
  • Ráðleggingar um útbúnað
  • Æfingarplan
  • Æfingabolur innifalinn
  • Þátttökumiði á Fjölnishlaupið
* Verð kynnt þegar nær dregur
Vinsælast
Félagshópur
3.500 kr.
á mánuði · 1 mán. uppsagnarfrestur
  • Þrjár æfingar á viku
  • Almennar ráðleggingar frá þjálfara
  • Vikuprógram sett inn á sunnudögum
  • Félagsstarf og viðburðir
★ Nýtt
Ástandsmæling
Verð í vinnslu
Einskiptis mat · Með þjálfara
  • Líkamssamsetning og VO₂ max
  • Hlaupastíl og skógreining
  • Markmiðasetning og eftirfylgni
Fræðast nánar →

Nýliðanámskeið — haust og vor

Haust · 6 vikur · byrjar fyrsta mánudag í september · æfingabolur innifalinn.

Vor · 6 vikur · lýkur miðvikudaginn fyrir Uppstigningardag · æfingabolur og þátttökumiði á Fjölnishlaupið innifalinn.

Verð kynnt þegar nær dregur.

Skráning og greiðslur í gegnum Abler – auðvelt með Auðkenni

Grafarvogur · 38. hlaupið

Fjölnishlaup Olís

Frjálsíþróttadeild Ungmennafélagsins Fjölnis

Fimmtudaginn 14. maí 2026
Uppstigningardagur · kl. 11:00 · Dalhús, Grafarvogur
38
ára saga
3
vegalengdir
272+
þátttakendur 2024
FRÍ
vottuð 5+10 km
🏃 Hlaupðu með fjölskylduna þína!
Skemmtiskokkið er 1,4 km. Börn 16 ára og yngri: 990 kr. – foreldrar og börn geta hlaupið saman.
Vegalengdir
Skemmtiskokk
1,4
km · Hringur um Dalhús
990 kr.
16 ára og yngri
1.490 kr.
17 ára og eldri
Ræst skömmu eftir 5 km
FRÍ vottuð
5 km hlaup
5
km · Löglega mæld
3.200 kr.
Forskráning til 13. maí
Ræst kl. 11:10
FRÍ vottuð
10 km hlaup
10
km · Löglega mæld · 12+ ára
3.900 kr.
Forskráning til 13. maí
Ræst kl. 11:00
ℹ Tímatöku lýkur kl. 12:40. Aldurstakmark í 10 km er 12 ára. Úrslit á timataka.is. Fyrstu 3 í 5 og 10 km hlaupi hljóta verðlaun – farandbikarar fyrir 1. sæti.
Dagskrá
Miðvikudagur 13. maíDaginn fyrir
18:00Afhending gagna – anddyri Grafarvogslaugar
19:00Afhending gagna lýkur
23:59Forskráningu lýkur á netskraning.is
Fimmtudagur 14. maíHlaupsdagur
09:15Afhending gagna á keppnisdegi
10:00Afhending gagna lýkur – mættu snemma!
11:0010 km hlaup ræst – frá Gagnveg
11:105 km hlaup ræst – frá endamarki
~11:20Skemmtiskokk ræst – 1,4 km hringur
12:40Tímatöku lokið
Hlaupaleiðir
10 km Frá Gagnveg – hringur um Geirsnef

Ræst kl. 11:00 frá göngustíg við Gagnveg (~500 m norðaustan við Dalhús). Vestur eftir Gagnvegi, um Fjallkonuveg, niður göngustíg að Grafarvogi. Inn í Bryggjuhverfið um Gullinbrú, eftir göngustíg meðfram Elliðaárósum og yfir nýju brýrnar við Geirsnef. Rangsælis hringur um Geirsnef og til baka. Mjög flöt leið.

5 km Sama leið – snúið við í Bryggjuhverfi

Ræst kl. 11:10 frá endamarki. Sama leið og 10 km í fyrri helming – snúið við í Bryggjuhverfi og hlaupið sömu leið til baka.

1,4 km Skemmtiskokk – hringur um Dalhús

Ræst skömmu eftir 5 km hlaupið. Hringur um Dalhús og yfir á Fjallkonuveg. Hentar öllum aldri og líkamsástandi.

📎 Skoða PDF kort af hlaupaleiðum →
Skráning og greiðslur
Þátttökugjöld – forskráning
10 km hlaup3.900 kr.
5 km hlaup3.200 kr.
Skemmtiskokk (17+)1.490 kr.
Skemmtiskokk (16 og yngri)990 kr.

Forskráningu lýkur á miðnætti 13. maí 2026

Skráning

Forskráning á netskraning.is. Afhending gagna 13. maí kl. 18–19 og á hlaupadegi 14. maí kl. 09:15–10:00 í anddyri Grafarvogslaugar.

Skráningu lýkur 13. maí kl. 23:59

Vertu sjálfboðaliði á Fjölnishlaupinu

Meðlimir skokkhópsins vinna á hlaupinu sem sjálfboðaliðar – þetta er hluti af menningu hópsins og eitt af því sem gerir Fjölnishlaupið að sérstæðum viðburði.

Drykkjarstöðvar Brautarvarsla Skráning og afhending Almenn aðstoð
Skrá mig sem sjálfboðaliða
Grafarvogur · Stofnaður 1992

Sagan okkar

Frá 1992 hefur Fjölnir skokkhópur safnað fólki saman sem vill hlaupa í góðum félagsskap.

Söguannáll
1988

Fyrsta Fjölnishlaupið

Fjölnishlaupið var fyrst haldið — fjórum árum áður en skokkhópurinn sjálfur var stofnaður. Hlaupið hefur farið fram árlega síðan.

1992

Skokkhópurinn stofnaður

Haustið 1992 stofnaði Erla Gunnarsdóttir hlaupahópinn ásamt Elínu Önnu, samkennara í Hamraskóla. Á þeim tíma störfuðu aðeins tveir aðrir hlaupahópar á landinu — í Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi. Við hittumst við Hamraskóla á mánudögum og miðvikudögum kl. 17:30. Frá upphafi var lögð áhersla á upphitun, teygjur og samkennd óháð getu — vettvangur til að hreyfa sig í hverfinu sínu án skráningar og skuldbindinga.

1993

Fyrstu sigrar og keppnishlaup

Í mars vann hópurinn skemmtikeppnina á árshátíð Fjölnis með laginu „Hress og kát á hreyfingu". Hefðin að halda árshátíð aðra helgina í mars hélt næstu 25 árin. Á Sumardaginn fyrsta, 22. apríl, tók hópurinn þátt í ÍR-hlaupinu (5 km) — fyrsta sameiginlega keppnishlaupinu. Þann 22. ágúst hljóp svo stór hópur Reykjavíkurmaraþonið.

[ÁR]

[Fleiri tímamót]

[Bætist við þegar fleiri „Horft um öxl"-pistlar Erlu eru tilbúnir.]

2026

38. Fjölnishlaupið — 14. maí

Haldið á Uppstigningardaginn við Dalhús. Þrjár vegalengdir og hópurinn fjölmennari en nokkurn tíma áður.

Þjálfarar gegnum tíðina
1992 – 2015
Erla Gunnarsdóttir
2015 – 2016
Helga Guðný Elíasdóttir
2016 – 2018
Óskar Jakobsson
2018 – 2020
Birna Varðardóttir
2020 – 2021
Ingvar Hjartarson
2022 – í dag
Jón Oddur Guðmundsson
Myndaalbúm

Myndir úr sögu hópsins — frá fyrstu árum til dagsins í dag.

Brúarhlaupið yfir Eyrarsund 2000

2000

Brúarhlaupið yfir Eyrarsund

Hópurinn tók þátt í BRØLØBET — opnunarhlaupinu yfir Eyrarsundsbrúna milli Svíþjóðar og Danmerkur.

Fjölnir í Kaupmannahöfn

[ÁR]

Hópurinn í Kaupmannahöfn

Skokkhópurinn fyrir framan Ráðhús Kaupmannahafnar með Fjölnis-fánann á lofti.

Um okkur

Fjölnir skokkhópur var stofnaður 1992 og er hluti af Frjálsíþróttadeild Ungmennafélagsins Fjölnis í Grafarvogi. Æfingar að minnsta kosti þrisvar í viku.

Á hverju ári stöndum við að baki Fjölnishlaupinu – einu elsta almenningshlaupi landsins. Meðlimir í hópnum eru sjálfboðaliðar við framkvæmd hlaupsins.

  • 01
    Opinn öllumEnginn of hægur, enginn of hraður. Allir njóta æfingarinnar.
  • 02
    Félagsskapur fyrstVið hlaupum saman, hvetjum hvort annað og höfum gaman.
  • 03
    Skipulag og festaSkýrt æfingaplan og ársskipulag.
  • 04
    Sjálfboðaliðar í FjölnishlaupiMeðlimir starfa á hlaupinu.
Hafðu samband
ÞjálfariJón Oddur Guðmundsson
Mán / Mið17:30 · Grafarvogslaug
Laugardagar09:30 · Gullinbrú
HverfiGrafarvogur, Reykjavík
FélagUngmennafélagið Fjölnir

Fylgstu með okkur

Æfingaáætlun vikunnar og fréttir á Facebook síðunni okkar

Afsláttarkjör félaga

Sem meðlimur í Fjölni skokkhópi nýtur þú sérstakra kjara hjá völdum verslunum í Reykjavík. Kynntu þig sem meðlim við afgreiðslu.

Fætur Toga

Hlaupavörur · Skógreining

faeturtoga.is · Höfðabakki 3

Útilíf

Íþrótta- og útivistarverslun

utilif.is · Skeifan 11d

Hlaupár

Hlaupavörur og búnaður

Kjör í vinnslu

+ Bæta við samstarfsverslun